Healthy Employees in Healthy Organizations Lissabon-Declaration

Icelandic WHP Website
Icelandic

Home Up

Up
Structure
Aims
Activities
Network Partners
Good Practices
Laws & Regulations
Publications
Links
Mail

 

Lissabon yfirlýsingin um heilsueflingu á vinnustað í litlum og meðalstórum fyrirtækjum

Heilsuefling á vinnustað byggist á sameiginlegu átaki vinnuveitenda, starfsfólks og samfélagsins til að bæta heilsufar og vellíðan fólks á vinnustað. Unnið er að þessu markmiði með því að:

Bæta skipulag vinnunnar og vinnuumhverfis
Stuðla að virkri þátttöku
Hvetja til einstaklingsmiðaðrar þróunar

Heilsuefling á vinnustað bætir áþreifanlega heilsufar og vellíðan starfsfólks og fjölskyldna þeirra. Hún stuðlar einnig að auknum efnahagslegum ávinningi, með því að auka afkastagetuna og efnahagslegan vöxt. Heilsuefling á litlum og meðalstórum fyrirtækjum (LMF) þarfnast sameiginlegs átaks og eru sameiginleg átaksverkefni hjá stuðningsfyrirtækjum sérlega líkleg til árangurs í heilsueflingu.

Þessi yfirlýsing er ætluð félagslegum samherjum og ráðamönnum í stjórnmálum, fyrirtækjum, vísindum og rannsóknum og er tilgangurinn sá að bæta rammann utanum heilsufar og efnahagslegan ávinning í LMF fyrirtækjum innan Evrópusambandsins.

Þessi yfirlýsing er afrakstur af sameiginlegu átaki lítilla og meðalstórra fyrirtækja og hrundið af stað af Evrópsku samstarfsneti um heilsueflingu á vinnustöðum (European Network for Workplace Health Promotion - ENWHP). Tuttugu og ein þjóð í Evrópu tekur þátt í átakinu. Evrópska samstarfsnetið um heilsueflingu á vinnustöðum er styrkt af Evrópunefndinni innan rammaátaksins heilsuefling á vinnustað.

Evrópska samstarfsnetið samanstendur af samtökum eins og heilbrigðis- og öryggis stofnunum ríkjanna, opinberum heilbrigðisstofnunum og ráðuneytum heilbrigðis- og vinnumála frá öllum Evrópusambandslöndunum, löndum Evrópska efnahagssvæðisins og nokkrum umsóknarlöndum. 

Hlutverk lítilla og meðalstórra fyrirtækja í að skapa skilyrði innan Evrópu sem einkennast af sjálfstæði í atvinnurekstri, félagslegri meðvitund og heilbrigði
Yfir 99% af fyrirtækjum í Evrópusambandsins (ESB) eru LMF og í þeim vinnur meira en tveir þriðju hlutar alls vinnuafls ESB. Lítil og meðalstór fyrirtæki og stofnanir gegna ekki eingöngu stóru hlutverki í ráðningarmálum, heldur gegna þau einnig í stóru hlutverki í efnahagslegum skilningi því meira en helmingur veltunnar í ESB rúmast innan þeirra.

Innan Evrópusambandsins er almennt talið að lítil og meðalstór fyrirtæki leggi fram stóran skerf til vaxtar, samkeppni, nýbreytni, og starfsráðninga.

Í stefnum og áætlanunum Evrópusambandsins er varða fyrirtæki er sameiginlegt markmið: þeim er ætlað að undirbúa jarðveginn fyrir tilurð og þróun á skapandi framtaki, sérstaklega á það við um LMF (samþykkt á Evrópsku Lissabon ráðstefnunni 23. og 24. mars 2000). Til þess að ná árangri á þessu sviði er nauðsynlegt að einfalda kröfurnar á sviði stjórnunar, laga, skatta, efnahags og félagslegra þátta.

Góð heilsa og vellíðan á vinnustað eru skilyrði fyrir því að skapandi framtak í LMF vaxi, enda eru þetta eru grundvallar þættir í nútíma stjórnunaraðferðum og mannauðs sjónarmiðum.

Efnahagsleg hagkvæmni LMF, og þar af leiðandi samfélagsleg þróun, í Evrópusambandslöndunum byggir í æ ríkara mæli á hæfum, áhugasömum og heilsuhraustum einstaklingum.

Uppsprettur heilsuhreysti í litlum og meðalstórum fyrirtækjum
Vinnu- og framleiðsluaðstæður í litlum fyrirtækjum eru ólíkar því sem gerist í stærri fyrirtækjum og og sumt í þeim aðstæðum eykur möguleika á að efla heilsuhreysti. Til dæmis má nefna þau áhrif sem eigandinn getur haft á vinnuaðstæður. Í minni fyrirtækjum eru td. oft persónulegri tengsl milli vinnufélaga; vinnan er annars eðlis þ.e. meiri ábyrgð hjá hverjum einstaklingi og fjölbreyttari viðgangsefni; og stjórnunarkerfi einfaldara. En vegna skorts á fjármunum eru málaflokkum eins og öryggi, starfsbundnu heilsueftirliti og heilsueflingu á vinnustað gert lægra undir höfði i LMF. Ástæða þess er oft sú að stöðluð skilyrði varðandi atvinnutengda heilsufars- og öryggisþætti eru talin kalla á aukna skipulagsvinnu og þar með minnkandi samkeppnishæfni.

Með hliðsjón af þessu, standa ráðamenn og stofnanir er láta sig heilsufarsmál á vinnustöðum varða, frammi fyrir spurningunni:
Hvernig má þróa félagslega og efnahagslega umgjörð LMF á þann veg að hagvöxtur, þar með talinn sköpun nýrra starfa, verði samofin eflingu heilsusamlegs vinnuumhverfis, félagslegrar umgjarðar og öryggisstaðla?

Áætlun um bætta heilsu á vinnustöðum og aukinn efnahagslegan ábata í litlum og meðalstórum fyrirtækjum
Evrópska samstarfsnetið um heilsueflingu á vinnustöðum hefur komið auga á, sundurgreint og skráð fyrirmyndir um heilsuseflingu í LMF í 21 Evrópulöndum. Þetta samansafn af dæmum, er stutt af skýringarmyndum og nýtilegum viðmiðunum til þess að bæta tilhögun vinnuskipulags.

Þessi dæmi undirstrika þá staðreynd að heilsuefling á vinnustað stuðlar að því að skapa réttar kringumstæður fyrir vöxt, atvinnu og nýsköpun í litlum og meðalstórum fyrirtækjum í Evrópu. Heilsuefling á vinnustöðum bætir heilsufar íbúanna og hjálpar um leið til við að byggja öruggan grunn að aukinni félagslegri meðvitund í Evrópu.

Með sundurgreiningu á núverandi aðstæðum, varðandi heilsueflingu á vinnustað í LMF, hefur Evrópska samstarfsnetið komið auga á aðferðir og valkosti sem ætlað er að styðja uppbyggingu heilsueflingar á þeim vinnustöðum 

Framtak í þágu heilsu: heilsuefling í litlum og meðalstórum fyrirtækjum
Aðal drifkraftar heilsuátaksins í LMF eru eigendur og stjórnarstarfsmenn. Fyrirmyndar leiðtogastarf ætti að samhæfa heilsufar og dagleg stjórnunarstörf með því að:

virkja allt starfsfólk í ákvarðanatöku og skipulagningu innan fyrirtækisins
tryggja gott andrúmsloft á vinnustað
veita eftirtekt og umbun fyrir vel unnið starf
fylgjast með umbótum, sér í lagi þeim sem snúa að bættu skipulagi

Uppbygging á heilsuvænu umhverfi: að skapa margföldunaráhrif

Vegna takmarkaðra úrræða sem innranet vinnueftirlitsstofnana býr yfir, þarf að gera nýjar áætlanir og fá nýja aðila til samstarfs um heilsueflingu á vinnustöðum í LMF. Sérstaklega áhugavert er að starfa með samtökum sem styðja þegar með einhverjum hætti LMF (þ.e. Viðskiptaráðuneyti, félag verslunar- og iðanaðarmanna, tryggingarfélög, banka o.fl.).

Þessi stuðningsfyrirtæki gegna lykilhlutverki varðandi

markaðssetningu og samskipti
eflingu á stuðningsneti fyrir heilsueflinu í LMF
skipulagningu þjónustu fyrir heilsueflingu á vinnustöðum

Upplýsingaherferðir sem hafa það að markmiði að efla meðvitund um heilsufarsmál í LMF ættu að beinast að hinum ýmsu sviðum þjóðfélagsins (þjóð, sýsla, bæjarfélag, hverfi).

Eftirfarandi grundvallarreglum skal fylgt:

Öll hlutaðeigandi samtök sem hafa með þróun á LMF að gera ættu að taka þátt í upplýsingaherferðum.
Raunverulegar þarfir og vandamál LMF verða að vera innifalin í áætlanagerð og útfærslu á aðgerðum.
Skipuleggja skal net stuðningsfyrirtækja og það nýtt í hverfum, sýslum eða hjá heilum þjóðum.

Í hverfaeiningum, ætti átak um heilsueflingu á vinnustað að styðja aðgerðir sem eru þegar í gangi í LMF. Sem dæmi um slíkar aðgerðir eru “Áætlun fyrir fyrirtæki og sjálfstæðan atvinnurekstur 2001-2005” ásamt hinni ráðgerðu “Evrópsku stofnskrá fyrir lítil fyrirtæki”. Aðildarlöndin, löndin á Evrópska efnahagssvæðinu ásamt umsækjendum um aðild, ættu að hafa átakið heilsueflingu á vinnustað í huga þegar þau gera áætlanir um að bæta aðstæður til að skapa og þróa LMF. Þau ættu einnig að tryggja að þær stofnanir sem hafa þýðingu fyrir LMF þrói og styðji fyrirmyndir og áætlanir sem gera LMF kleift að nýta sér heilsueflingu á vinnustað.

Átakið heilsuefling á vinnustað í LMF ætti að vera byggt á “Viðmiði um góðar venjur” sem var sett saman af Evrópska samstarfsnetinu um heilsueflingu á vinnustöðum. Mikilvægir þátttakendur á þjóðar grundvelli ættu að hvetja LMF, þjónustuaðila og alla aðra aðila sem koma að málinu til þess að nýta sér þessi viðmið.

Þessi yfirlýsing var samþykkt á fundi Evrópska samstarfsnetsins um heislueflingu á vinnustöðum (ENWHP) 16. Júní, 2001 og því næst kynnt á 2. Evrópu ráðstefnunni 18.-19. Júní, 2001. Hvorutveggja haldið í Lissabon.

 

Mailing address: Tel./Fax Email:
Vinnueftirlit ríkisins
The European Network for Workplace Health Promotion
Bíldshöfða 16
110 Reykjavík
ICELAND
Tel: +354 550 4600
Fax:  +354 550 4610
Dagrún Þórðardóttir - dagrun@ver.is