|

















| |

Persónuhlífum, sem seldar eru hér á landi, skulu
fylgja notkunarleiðbeiningar á íslensku.
Í notkunarleiðbeiningum, sem framleiðandi skal
semja og láta í té með þeim persónuhlífum sem hann setur á markað, skulu auk
nafns og póstfangs framleiðandans og/eða umboðsmanns hans með staðfestu innan
Evrópusambandsins vera allar nauðsynlegar upplýsingar um:
- geymslu, notkun, hreinsun, viðhald,
viðgerðir og sótthreinsun. Þau efni sem framleiðandi mælir með til hreinsunar,
viðhalds eða sótthreinsunar eiga ekki vera skaðleg hlífunum eða notendum
þeirra ef leiðbeiningunum er fylgt;
- gagnsemi persónuhlífanna samkvæmt tæknilegum
prófunum sem fram fara til að sannreyna hve mikla vernd þær veita eða
verndarflokk þeirra;
- viðbótarbúnað, sem fáanlegur er með
persónuhlífum, og hvers konar varahlutir hæfa þeim;
- vernd, sem hæfir mismunandi hættustigum, og
samsvarandi notkunartakmörk;
- endingartíma persónuhlífanna eða ákveðinna
íhluta þeirra;
- viðeigandi flutningsumbúðir utan um
persónuhlífar;
- þýðingu merkinga ef um þær er að ræða (sjá
2.12).
Notkunarleiðbeiningar skulu vera skýrar og
skiljanlegar og ritaðar á a.m.k. opinberu tungumáli eða tungumálum þess
aðildarríkis sem senda á þær til.
|