Skylt er að merkja allar persónuhlífar CE-merkingu og þeim skulu fylgja notkunarleiðbeiningar á íslensku

Forsíða
Yfirlit
Löggjöf
Nýaðferðin
CE-merking vöru
Samþykktir aðilar
Samræmisyfirlýsingar
Staðlar
CE-merkið
Aðrar merkingar
Notkunarleiðbeiningar
Markaðseftirlit
Gátlisti
Notkun persónuhlífa
Spurt og svarað
Tenglar

Staðlar

Tilskipun 89/686/EB um samræmingu laga aðildarríkjanna um persónuhlífar kveður einungis á um grunnkröfur sem persónuhlífar verða að uppfylla.

Til að auðveldara sé að sýna fram á að persónuhlífar samræmist þessum grunnkröfum er nauðsynlegt að til séu samhæfðir evrópskir staðlar um hönnun hlífanna og framleiðslu, forskriftir og prófunaraðferðir, vegna þess að gengið er út frá því að vörur, sem eru í samræmi við þessa staðla, uppfylli fyrrgreindar grunnkröfur. Þó ekki sé skylda að notast við viðeigandi staðal þá tryggir notkun staðalsins að lágmarkskröfur reglnanna um gerð persónuhlífa séu uppfylltar.

Samhæfðir evrópskir staðlar eru samdir af einkaaðilum og hvorki er né verður skylt að fara eftir þeim. Staðlastofnun Evrópu (CEN) og Rafstaðlastofnun Evrópu (CENELEC) eru þar til bærar stofnanir sem hafa fengið heimild til að samþykkja samhæfða staðla í samræmi við almennar viðmiðunarreglur um samstarf framkvæmdastjórnarinnar og þessara tveggja stofnana sem fullgiltar voru 13. nóvember 1984. Í tilskipuninni merkir samræmdur staðall texta sem inniheldur tækniforskriftir samkvæmt evrópskum staðli eða samhæfingarskjali sem Evrópsku staðlasamtökin (CEN) eða Evrópsku rafstaðlasamtökin (CENELEC) hafa samþykkt.

Á Íslandi hefur Staðlaráð það hlutverk að gera alla staðla sem koma frá CEN og CENELEC að íslenskum stöðlum.

Á heimasíðu Staðlaráðs er að finna skilgreiningu á stöðlum.

Á síðu Evrópusambandsins er m.a. birtur listi (á ensku) yfir alla staðla sem samþykktir hafa verið varðandi persónuhlífar.

 

Senda fyrirspurn

Vinnueftirlit ríkisins sér um markaðseftirlit persónuhlífa til atvinnunota - Smellið hér til að fara á heimasíðu Vinnueftirlitsins
   Bíldshöfða 16 -110 Reykjavík
   sími: 550 4600 - fax: 550 4610

Þessari síðu var síðast breytt;
09. maí 2011