Skylt er að merkja allar persónuhlífar CE-merkingu og þeim skulu fylgja notkunarleiðbeiningar á íslensku

Forsíða
Yfirlit
Löggjöf
Nýaðferðin
CE-merking vöru
Samþykktir aðilar
Samræmisyfirlýsingar
Staðlar
CE-merkið
Aðrar merkingar
Notkunarleiðbeiningar
Markaðseftirlit
Gátlisti
Notkun persónuhlífa
Spurt og svarað
Tenglar

Notkun persónuhlífa

Meginregla:

Nota skal persónuhlífar þegar ekki er hægt að komast hjá áhættu eða takmarka hana nægjanlega með tæknilegum ráðum, sem veita almenna vernd, eða með ráðstöfunum, aðferðum eða annarri tilhögun við skipulagningu vinnunnar. Því skal fyrst og fremst leitast við að skipuleggja vinnu og vinnustað þannig að ekki skapist hætta. Sé það ekki mögulegt skal skilyrðislaust nota persónuhlífar.

bulletTilskipun 89/656/EBE fjallar um lágmarkskröfur varðandi öryggi og hollustu er starfsmenn nota persónuhlífar á vinnustöðum
bulletTilskipunin var innleidd hér á landi í reglum um notkun persónuhlífa nr. 497/1994

Skilgreining

Í reglunum merkir hugtakið persónuhlíf allan búnað, sem starfsmanni er gert að klæðast eða halda á sér til verndar gegn einni eða fleiri hættum sem stefnt geta öryggi hans og heilsu í voða, svo og allan viðbótar- eða aukabúnað sem ætlað er að þjóna þessu hlutverki.

Persónuhlífar, sem notaðar eru, skulu uppfylla gildandi reglur á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) um gerð, hönnun og framleiðslu.

Allar persónuhlífar skulu:

bullethenta til varnar þeirri áhættu, sem um er að ræða, án þess að þær leiði sjálfar til aukinnar áhættu
bullethæfa ríkjandi aðstæðum á vinnustað
bulletmiðast við vinnuvistfræðilegar kröfur
bulletvera mátulegar miðað við nauðsynlegar stillingar

Skyldur atvinnurekenda:

Atvinnurekandi skal:

bulletláta starfsmönnum persónuhlífar í té endurgjaldslaust þegar aðstæður krefjast
bulletgreina og meta áhættuna til að geta valið viðeigandi persónuhlífar
bulletákvarða við hvaða skilyrði beri að nota þær
bulletsjá fyrir nægum upplýsingum um hverja gerð persónuhlífa og upplýsa starfsmann um þá hættu sem persónuhlífunum er ætlað að vernda hann gegn
bulletsjá til þess að persónuhlífar verði notaðar í samræmi við notkunarleiðbeiningar
bulletsjá til þess að starfsmenn fái þjálfun og - ef við á - sýnikennslu í notkun persónuhlífa
bulletsetja upp eitt eða fleiri skilti sem gefa til kynna hvaða persónuhlífar ber að nota á viðkomandi vinnustað

Atvinnurekandi skal tryggja að:

bulletpersónuhlífum sé haldið við
bulletpersónuhlífar séu yfirfarnar
bulletpersónuhlífar séu lagfærðar
bulletpersónuhlífar séu leymdar á fullnægjandi hátt þannig að þær haldi verndareiginleikum sínum og hreinleika (til varnar þeirri áhættu sem um er að ræða og uppfylli kröfur um hreinleika)

Skyldur starfsmanna:

Starfsmenn skulu:

bulletfylgja gefnum fyrirmælum um notkun persónuhlífa
bulletnota persónuhlífar þegar við á (lög nr. 46/1980)

Til umhugsunar:

bulletHefur áhættan verið greind og metin í fyrirtækinu áður en persónuhlífar voru valdar?
bulletHvernig ganga innkaup fyrir sig?
bulletHafa starfsmenn tækifæri til að taka þátt í vali á persónuhlífum?
bulletFinnast skrifaðar reglur um þjónustu og viðhald?
bulletNota starfsmenn búnaðinn?
 

 

Senda fyrirspurn

Vinnueftirlit ríkisins sér um markaðseftirlit persónuhlífa til atvinnunota - Smellið hér til að fara á heimasíðu Vinnueftirlitsins
   Bíldshöfða 16 -110 Reykjavík
   sími: 550 4600 - fax: 550 4610

Þessari síðu var síðast breytt;
09. maí 2011