|
|
CE-merking skal vera skýr og varanleg. Ef persónuhlíf er með öðrum merkingum svo sem stærðarmerkingum, umhverfismerkingum o.þ.h. þá skulu þær merkingar vera þannig að þær valdi ekki misskilningi eða skyggi á CE-merkinguna. CE-merkingum skulu hins vegar í einstaka tilfellum fylgja frekari merkingar sem sýna sérstök not búnaðarins. Þetta á fyrst og fremst við um hanska og hlífðarfatnað. Í reglum nr. 501/94 um gerð persónuhlífa er fjallað um
upplýsingamerki og önnur auðkenni sem sett eru á persónuhlífar.
Í staðli EN 340:2003 er fjallað m.a. um auðkenni og upplýsingamerki. Staðallin heitir “Hlífðarfatnaður – Almennar kröfur” og er seldur hjá Staðlaráði Íslands. Í staðlinum segir að mælt sé með því að tölur séu ekki smærri en 2 mm og upplýsingamerki ekki smærri en 10 mm að meðtöldum ramma. Einnig er mælt með því að upplýsingamerkin séu svört á hvítum grunni. Upplýsingamerki sem vara við lífshættu ættu að vera á ytra byrði vörunnar. Tafla 1 - Upplýsingamerki - Táknmerki (sbr. staðall EN 340:2003):
Tafla 2 - Upplýsingamerki sem segja til um ætluð not hlífðarfatnaðarins (sbr. staðall EN 340:2003):
Mynd 1 - Grunnur að táknmynd sem upplýsir um vörn hlífðarfatnaðar (ISO 7000-2410):
Mynd 2 - Notkunarleiðbeiningar (ISO 7000-1641):
Í reglum nr. 707/1995 um öryggis- og heilbrigðismerki á vinnustöðum er m.a. kveðið á um lágmarkskröfur um skilti eins og boðmerki varðandi notkun persónuhlífa á vinnustað.
|
|
Þessari síðu var síðast breytt; |