Skylt er að merkja allar persónuhlífar CE-merkingu og þeim skulu fylgja notkunarleiðbeiningar á íslensku

Forsíða
Yfirlit
Löggjöf
Nýaðferðin
CE-merking vöru
Samþykktir aðilar
Samræmisyfirlýsingar
Staðlar
CE-merkið
Aðrar merkingar
Notkunarleiðbeiningar
Markaðseftirlit
Gátlisti
Notkun persónuhlífa
Spurt og svarað
Tenglar

Markaðseftirlit

Framleiðendur og innflytjendur persónuhlífa bera ábyrgð á því að varan uppfylli grunnkröfur um heilsu og öryggi eins og þeim er lýst í reglum nr. 501/1994 um gerð persónuhlífa.

Það er ekki fyrr en varan er komin á markaðinn að eftirlit er framkvæmt af stjórnvöldum.

Íslensk stjórnvöld sem annast markaðseftirlit með persónuhlífum eru:

bulletVinnueftirlitið (persónuhlífar til atvinnunota)
bulletLöggildingarstofa (persónuhlífar til einkanota)

Svo dæmi sé tekið er kannað hvort varan sé CE-merkt og hvort henni fylgi íslenskar leiðbeiningar. Í sumum tilvikum telst ástæða til að kalla eftir samræmisyfirlýsingu.

Til að CE-merkið öðlist þann sess, sem því er ætlað, þarf að vera möguleiki á að grípa til viðeigandi ráðstafana í þeim tilvikum sem reglum er ekki fylgt.

Verði aðildarríki þess áskynja að persónuhlíf, merkt CE-merkinu, sé ekki notuð eins og til er ætlast og/eða að hún uppfylli ekki grunnkröfur um heilsu og öryggi skal það gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til að taka búnaðinn af markaðinum og banna markaðssetningu eða frjálsan flutning hans.

Úrræði stjórnvalda:

Vinnueftirlitinu er heimilt að banna markaðssetningu persónuhlífa sem uppfylla ekki ákvæði reglnanna. Eins getur Vinnueftirlitið farið fram á afturköllun persónuhlífa teljist þær sérstaklega hættulegar. Framleiðandi eða fulltrúi hans innan Evrópska efnahagssvæðisins ber allan kostnað af slíkri afturköllun.

Brot á reglunum varða sektum.

 

Senda fyrirspurn

Vinnueftirlit ríkisins sér um markaðseftirlit persónuhlífa til atvinnunota - Smellið hér til að fara á heimasíðu Vinnueftirlitsins
   Bíldshöfða 16 -110 Reykjavík
   sími: 550 4600 - fax: 550 4610

Þessari síðu var síðast breytt;
09. maí 2011