Skylt er að merkja allar persónuhlífar CE-merkingu og þeim skulu fylgja notkunarleiðbeiningar á íslensku

Forsíða
Yfirlit
Löggjöf
Nýaðferðin
CE-merking vöru
Samþykktir aðilar
Samræmisyfirlýsingar
Staðlar
CE-merkið
Aðrar merkingar
Notkunarleiðbeiningar
Markaðseftirlit
Gátlisti
Notkun persónuhlífa
Spurt og svarað
Tenglar

Löggjöf

Tilskipun Evrópusambandsins - Lög og reglur

Tilskipun 89/686/EB um samræmingu aðildarlandanna um persónuhlífar.

Breytingartilskipun 93/95/EB.
Breytingartilskipun 93/68/EB.
Breytingartilskipun 96/58/EB.

Meginþættirnir í tilskipuninni eru heilsa og öryggi. Þetta er grundvallaratriði varðandi persónuhlífar til að þær geti veitt notandanum þá vernd sem þeim er ætlað. Framleiðandinn skal upplýsa um gegn hvers konar hættum persónuhlífinni er ætlað að vernda. Evrópska efnahagssvæðið (EES) innleiddi tilskipun til þess að samræma lög aðildarríkjanna um persónuhlífar (tilskipun 89/686/EB) til þess að tryggja frjálsa markaðssetningu persónuhlífa án þess að skerða á nokkurn hátt þá vernd sem þegar var krafist í aðildarríkjunum og stuðla að því að auka verndina ef þörf krefði. Sérhverju aðildarríki var ætlað að fella kröfur tilskipunarinnar inn í eigin lagatexta.

Á Íslandi gilda eftirfarandi lög og reglur varðandi persónuhlífar:

bulletLög nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum
(Vinnuverndarlögin).
bulletLög nr. 62/2005 um Neytendastofu
bulletLög nr. 134/1995 um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu
bulletLög nr. 25/1991 um skaðsemisábyrgð
bulletReglur nr. 501/1994 um gerð persónuhlífa
bulletReglur nr. 497/1994 um notkun persónuhlífa
bulletReglugerð nr. 635/1999 um persónuhlífar til einkanota

Myndin hér að neðan sýnir tengsl laga, tilskipana, reglna og staðla.

Samþáttun laga, reglna, tilskipana og staðla

 

Senda fyrirspurn

Vinnueftirlit ríkisins sér um markaðseftirlit persónuhlífa til atvinnunota - Smellið hér til að fara á heimasíðu Vinnueftirlitsins
   Bíldshöfða 16 -110 Reykjavík
   sími: 550 4600 - fax: 550 4610

Þessari síðu var síðast breytt;
09. maí 2011