Skylt er að merkja allar persónuhlífar CE-merkingu og þeim skulu fylgja notkunarleiðbeiningar á íslensku

Forsíða
Yfirlit
Löggjöf
Nýaðferðin
CE-merking vöru
Samþykktir aðilar
Samræmisyfirlýsingar
Staðlar
CE-merkið
Aðrar merkingar
Notkunarleiðbeiningar
Markaðseftirlit
Gátlisti
Notkun persónuhlífa
Spurt og svarað
Tenglar

Samræmisyfirlýsingar

 

EB-yfirlýsing um samræmi.

 

Með samræmisyfirlýsingu vottar framleiðandi að viðkomandi persónuhlíf sé í samræmi við ákvæði reglna nr. 501/1994 um gerð persónuhlífa (tilskipun 89/686/EB).

Í V. viðauka reglnanna er fyrirmynd að EB-samræmisyfirlýsingu.

Samræmisyfirlýsingin skal innihalda lýsingu á persónuhlífinni og númer staðals sem á við persónuhlífina.

Jafnframt skal koma fram númer prófunarvottorðs og nafn og póstfang samþykkts aðila þegar við á.

Undirskrift framleiðanda eða umboðsmanns hans á Evrópska efnahagssvæðinu skal einnig koma fram á samræmisyfirlýsingunni.

 

Persónuhlífar eru flokkaðar í þrjá flokka eftir þeirri áhættu sem hlífunum er ætlað að vernda gegn. Aðferð við mat á samræmi veltur á því hvaða flokki persónuhlífin tilheyrir.

[Persónuhlífar sem ekki falla undir tilskipun 89/686/EB eru þó í fjórða flokknum er skráist sem 0-flokkur, t.d. persónuhlífar fyrir löggæslu og hernað, skurðstofuhanskar og -grímur og björgunarvesti og -jakkar fyrir farþega á skipum og í flugvélum]

 

Nánari leiðbeiningar (á ensku) um flokkun einstakra persónuhlífa er hægt að fá hér.

 

Flokkarnir eru:

 

Flokkur

I

II

III

Lýsing

„Einfaldar” persónuhlífar
Persónuhlífar þar sem gengið er út frá því að notandinn geti metið þá vernd sem hlífin veitir gegn minni háttar hættum og gerir sér örugglega grein fyrir því tímanlega

Hvorki „einfaldar” né „flóknar” persónuhlífar

„Flóknar” persónuhlífar
Persónuhlífar sem ætlaðar eru til verndar gegn lífshættu eða alvarlegri varanlegri hættu þar sem notandinn getur ekki gert sér grein fyrir hættunni í tíma

Útgáfa samræmisyfirlýsingar

Samræmisyfirlýsing gefin út á ábyrgð framleiðanda

Samræmisyfirlýsing gefin út af framleiðanda eftir að samþykktur aðili hefur gefið út vottorð um gerðapróf

Samræmisyfirlýsing gefin út af framleiðanda eftir að tilkynntur aðili hefur gefið út vottorð um gerðarpróf og eftir að tilkynntur aðili hefur framfylgt gæðaeftirliti á vöru eða eftirliti á gæðakerfi

 

CE-merki

 

CE

 

CE

 

0000 CE

 

Þessu ferli er betur lýst með eftirfarandi flæðiriti:

 

Ferill sem framleiðandi velur sér m.t.t. hvers konar vöru hann framleiðir

 

 

 

Dæmi um flokkun persónuhlífa:

Flokkur I – sólgleraugu, garðhanskar, uppþvottahanskar, hárnet

Flokkur II – augnhlífar, öryggishjálmar, heyrnarhlífar, öryggisskór, endurskinsfatnaður

Flokkur III – fallvarnarbúnaður, vörn gegn hættulegum efnum, vörn gegn mjög miklum kulda/hita, vörn gegn hættu af völdum rafmagns.

 

Nánari leiðbeiningar (á ensku) um flokkun einstakra persónuhlífa er hægt að fá hér.

 

 

Senda fyrirspurn

Vinnueftirlit ríkisins sér um markaðseftirlit persónuhlífa til atvinnunota - Smellið hér til að fara á heimasíðu Vinnueftirlitsins
   Bíldshöfða 16 -110 Reykjavík
   sími: 550 4600 - fax: 550 4610

Þessari síðu var síðast breytt;
09. maí 2011