Skylt er að merkja allar persónuhlífar CE-merkingu og þeim skulu fylgja notkunarleiðbeiningar á íslensku

Forsíða
Yfirlit
Löggjöf
Nýaðferðin
CE-merking vöru
Samþykktir aðilar
Samræmisyfirlýsingar
Staðlar
CE-merkið
Aðrar merkingar
Notkunarleiðbeiningar
Markaðseftirlit
Gátlisti
Notkun persónuhlífa
Spurt og svarað
Tenglar

Yfirlit

Persónuhlíf er hvers konar búnaður eða tæki sem einstaklingar klæðast eða halda á sér til verndar gegn hættu eða hættum er ógna heilsu eða öryggi þeirra.

Vegna samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) gengu í gildi m.a. reglur nr. 501/1994 um gerð persónuhlífa og eftirlit með þeim. Reglurnar byggja á tilskipun Evrópusambandsins nr. 89/686/EB um samræmingu laga aðildarríkjanna um persónuhlífar. Með gildistöku þessara reglna breytist m.a. eftirlit með persónuhlífum. Ekki þarf lengur að leita viðurkenningar Vinnueftirlitsins á búnaðinum. Í stað þess verður hlutverk stofnunarinnar að hafa eftirlit með vörunni á markaðnum og kanna hvort framleiðendur og/eða innflytjendur uppfylli skyldur sínar sem reglurnar leggja þeim á herðar þannig að varan uppfylli gerðar kröfur.

Tilskipun nr. 89/686/EB um persónuhlífar tilheyrir svokölluðum "Nýaðferðartilskipunum". Tilgangur Nýju aðferðarinnar er að samræma grunnkröfur til að tryggja vernd borgaranna og jafnframt að tryggja frjálst flæði vörunnar innan EES.

Tilskipunin skilgreinir grunnkröfur sem gerðar eru til persónuhlífa varðandi heilsu og öryggi. Hún skilgreinir jafnframt aðferðir við mat á samræmi þar sem persónuhlífar, sem vernda gegn alvarlegri hættu, geta þurft að skoðast af svokölluðum Samþykktum aðilum (prófunarstofum).

Tilskipunin er, eins og áður segir, “Nýaðferðartilskipun”. Framleiðendur eða fulltrúar þeirra innan EES þurfa að uppfylla tæknilegar kröfur tilskipunarinnar. Til þess geta þeir fylgt samræmdum Evrópustöðlum (EN-staðlar) sem skilgreina nánar hvað þarf til að uppfylla grunnkröfurnar um heilsu og öryggi.

Leiðsögn (á ensku) um það hvernig túlka skuli tilskipunina og nota er hægt að fá hér.
Leiðsögnin hefur enga lagalega þýðingu en er eftir sem áður mjög gagnleg.

 

Senda fyrirspurn

Vinnueftirlit ríkisins sér um markaðseftirlit persónuhlífa til atvinnunota - Smellið hér til að fara á heimasíðu Vinnueftirlitsins
   Bíldshöfða 16 -110 Reykjavík
   sími: 550 4600 - fax: 550 4610

Þessari síðu var síðast breytt;
09. maí 2011