Skylt er að merkja allar persónuhlífar CE-merkingu og þeim skulu fylgja notkunarleiðbeiningar á íslensku

Forsíða
Yfirlit
Löggjöf
Nýaðferðin
CE-merking vöru
Samþykktir aðilar
Samræmisyfirlýsingar
Staðlar
CE-merkið
Aðrar merkingar
Notkunarleiðbeiningar
Markaðseftirlit
Gátlisti
Notkun persónuhlífa
Spurt og svarað
Tenglar

CE-merkið

CE-merkið er merki um samræmi, þ.e.a.s. staðfesting á að varan uppfylli þær grunnkröfur um heilsu og öryggi eins og þeim er lýst í reglum nr. 501/1994 um gerð persónuhlífa (og í tilskipun 89/686/EB). CE-merkið er því ekki gæðastimpill umfram þá staðfestingu.

Framleiðandi skal merkja hverja persónuhlíf með CE-merkinu.
Merkið skal sett á hverja framleidda persónuhlíf þannig að það sé óafmáanlegt.
Sé því ekki við komið vegna eiginleika vörunnar má setja merkið á umbúðirnar.
Ef samþykktur aðili tekur þátt í eftirliti með framleiðsluferlinu skal bæta framan við CE-merkið kenninúmeri samþykkta aðilans. – Þetta á við um persónuhlífar í flokki III.

Aðferðir við CE merkingar má finna í reglum nr. 957/2006 um aðferðareiningar fyrir hin ýmsu þrep samræmismatsins og reglur um áfestingu og notkun CE-samræmismerkja sem ætlað er að nota í tilskipun um tæknilega samhæfingu.

Ekki er vitað nákvæmlega hver uppruni skammstöfunarinnar CE er. Þó er kenning flestra að það sé skammstöfun á Communauté Européenne, sem þýðir Evrópusamfélagið, eða skammstöfun á Conformité Européenne sem þýðir evrópskt samræmi.

Útliti CE-merkisins er lýst á þessari teikningu:


CE-merkið skal vera í réttum hlutföllum og að lágmarki 5 mm á hæð

 

Senda fyrirspurn

Vinnueftirlit ríkisins sér um markaðseftirlit persónuhlífa til atvinnunota - Smellið hér til að fara á heimasíðu Vinnueftirlitsins
   Bíldshöfða 16 -110 Reykjavík
   sími: 550 4600 - fax: 550 4610

Þessari síðu var síðast breytt;
09. maí 2011